Forventes på lager: 08-01-2022
Sagan af héranum og broddgeltinum er ein af þessum klassískum sögum þar sem sannast hið fornkveðna: dramb er falli næst. Hérinn, sannfærður um yfirburða fótafimi sína hittir broddgöltinn á göngu. Hérinn gerir grín að stuttfætta broddgeltinum og reytir hann til reiði. Broddgölturinnn stingur upp því að keppa við hérann í kapphlaupi og útkljá þannig deilur þeirra. Hérinn samþykkir og tekur að auki veðmáli broddgaltarins um hver komi fyrstur í mark enda fullviss um yfirburði sína og sannfærður um að hann muni sigra kapphlaupið. Kapphlaupið fer þó ekki alveg eins og hérinn hafði reiknað með og broddgölturinn reynist snjallari á endasprettinum.
Ævintýri Grimmsbræðra eru löngu orðin þekkt um allan heim enda verið þýdd á fleiri hundruð tungumál. Þjóðsögur Grimmsbræðra hafa tekið töluverðum breytingum í aldanna rás án þess þó að missa upprunalegan boðskap sinn og í dag ganga þjóðsögur Jacobs og Wilhelms einfaldlega undir nafninu Ævintýri Grimmsbræðra.
Bræðurnir Jacob og Wilhelm fæddust í Þýskalandi. Þeir voru málvísindamenn og sömdu þjóðsögur til að efla og styrkja þjóðsagnalist heimalandsins. Bræðurnir nutu töluverðrar hylli fyrir þjóðsögur sínar á 19. öld þótt margar þeirra hafi þótt verulega óhugnalegar. Meðal annarra þekktra ævintýra Grimmsbræðra eru Mjalllhvít, Rauðhetta og Öskubuska.
| Forlag | SAGA Egmont |
| Forfatter | Grimmsbræður |
| Type | Ebog |
| Format | epub |
| Sprog | Islandsk |
| Udgivelsesdato | 08-01-2022 |
| Udgiver | SAGA Egmont |
| Serie | Grimmsævintýri |
| Serienummer | 15 |
| Oversætter | Theódór Árnason |
| Sideantal | 6 Sider |
| Filtype | epub |
| Filversion | 3.0 |
| Filformat | Reflowable |
| Filstørrelse | 239 KB |
| Kopibeskyttelse | DigitalVandmaerkning |
| Datamining | Ikke tilladt |
| ISBN-13 / EAN-13 | 9788728036853 |