Beskrivelse
Flugvélin flýgur hátt yfir skýjunum. Mjúkt hljóð vélarinnar og blítt suð frá loftræstingunni skapar þæginlegan hljóðbakgrunn. Allt í kring heyrist í lágu smáspjalli, smellum í öryggisbeltum og í þjónustuvagninum sem færist rólega niður ganginn. Hallaðu þér aftur í stólnum og láttu þig dreyma í skýjunum.
Saga Sounds
Rannsóknir hafa sýnt að hljóð geta haft bæði slakandi og örvandi áhrif á heilann. Slökunar serían er röð af skemmtilegum og fjölbreyttum hljóðheimum sem þú getur hlustað á þegar þú vilt slaka á, fara að sofa eða einbeita þér vinnunni. Sérhannaður hljóðheimur skapar róandi andrúmsloft sem þú getur stigið inn í hvenær og hvar sem þú vilt.
Rasmus Broe hefur rekið fyrirtækið Grammafon í yfir 17 ár, þar sem hann skapar fagmannlega útfærðar teikni- og hljóðmyndir. Þar starfar hann við hljóðvinnslu fyrir teiknimyndir, hlaðvörp, hljóðbækur og kvikmyndir.