Forventes på lager: 18-08-2020
Alle Kategorier som dette produkt er en del af
Alle Kategorier som dette produkt er en del af
Við sem störfum daglega við rannsóknir kynferðisbrotamála teljum okkur gjarnan vera ýmsu vana. Við höfum kynnst ótrúlegustu órum fólks og ranghugmyndum varðandi kynferðismál. Eftir nokkur ár í starfi þykjumst við hafa upplifað tímana tvenna og ekkert eigi eftir að reka á fjörur okkar sem komi á óvart. Það reyndist ekki rétt ályktun. Rannsókn þessa máls vakti óhug, jafnt þeirra sem voru nýliðar í slíkum rannsóknum og þeirra sem töldust reyndari.
Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.