Eiginkona læknisins

(Lydbog, zip_mp3, Islandsk)
Forfatter: Daniel Hurst

Forlag: Jentas

Forventes på lager: 24-06-2026

PRIS
144,- kr
Levering: Straks (Leveres på e-mail) (kan downloades efter udgivelsen d. 24-06-2026)

Når du handler på WilliamDam.dk, betaler du den pris du ser.

  • Ingen gebyrer
  • Ingen abonnementer
  • Ingen bindingsperioder

Beskrivelse

Hann heldur að enginn muni komast að leyndarmálinu – en hún veit sannleikann … Maðurinn minn er læknir. Hann er klár og heillandi, allir treysta honum. Nema ég. Á yfirborðinu lítur út fyrir að ég eigi allt – fullkomið hjónaband, fullkominn eiginmann, fullkomið líf. En sannleikurinn er allt annar. Drew Devlin læknir er ekki sá virðulegi maður sem hann gefur sig út fyrir að vera. Ástæða þess að við ákváðum að flytja í þetta gamla fallega hús með stórkostlega sjávarútsýninu var sú að við vildum gjarnan snúa baki við fortíðinni. Þetta átti að vera ný byrjun fyrir okkur. Hins vegar hef ég komist að því að eiginmaðurinn lýgur að mér – aftur. Hann nýtir sér valdið sem starfið gefur honum til að eyðileggja líf fólks og taka nákvæmlega það sem hann langar í – sama hvaða áhrif það hefur á aðra. En hann vanmetur mig. Ég hef nægan tíma í þessu stóra, einangraða húsi til að hugsa um öll mistökin sem hann hefur gert. Og maðurinn minn hefur ekki hugmynd um hvað á eftir að gerast … --- „Vá … Gat ekki lagt hana frá mér! … Óvænt flétta sem snéri mér í hringi! … Þessi á skilið fleiri en 5 stjörnur, hún er skyldulesning!“ - Bókadómur Heidi Lynn „Vá! … Mjög spennandi, ég las hana í einum rykk … Ég sat á stólbrúninni og nagaði neglurnar á meðan hjartað hamaðist! … Taugatrekkjandi bók sem fær hjartað til að slá hraðar, blaðsíðurnar fletta sér sjálfar og þú getur ekki lagt hana frá þér … Ég ELSKAÐI hana.“ - Bookworm86 „Vá, vá, vá, vá, vá. Ég meina, vá. Þessi bók var svo góð! … Virkilega spennandi söguþráður … Ég fór fyrst í eina átt, síðan aðra.“ - @thrilleraddict1986 „Stressandi og spennandi bók … Vá … Ég gat ekki flett blaðsíðunum nógu hratt … Snúinn söguþráður sem kemur þér algjörlega á óvart. Þetta er syndsamleg bók á jákvæðan hátt, þú verður bara að lesa hana! – Umsagnir um bókina í bókagagnrýni Once Upon a Time „Virkilega sjokkerandi og ótrúleg … Ef þér finnst gaman í rússíbana, vertu þá tilbúinn, þú situr í einum sem er fullur af kröppum beygjum og snúningum … Frábær!“ - @travel_through_books „Þetta er önnur bókin sem ég les eftir þennan höfund og varð heillaður af stílnum og hæfileikum hans til að skrifa svona grípandi bók … Þar sem þetta er glæpasaga giskarðu mögulega á hvað eigi eftir að gerast áður en þú opnar bókina. Jæja, ég mæli eindregið með að þú opnir hana og látir draga þig inn í sögu sem er full af blekkingum og lygum … Ég vona að þú njótir hennar jafn mikið og ég gerði. 5 stjörnur“ – B fyrir Bookreview

Læsernes anmeldelser (0)

Alle detaljer

Forlag Jentas
Forfatter Daniel Hurst
Type Lydbog
Format zip_mp3
Sprog Islandsk
Udgivelsesdato 24-06-2026
Serie Eiginkona læknisins
Serienummer 1
Filtype zip_mp3
Filstørrelse 521785 KB
Kopibeskyttelse DigitalVandmaerkning
Datamining Ikke tilladt
ISBN-13 / EAN-13 9788742829011