Forventes på lager: 29-03-2022
Stórfellt vopnað rán var framið hjá Jyske Bank, Falkoner Alle 72 á Friðriksbergi, mánudaginn 2. júlí 2001, klukkan 14.25. Ránsfengurinn var 103.600 dkr. Á flóttanum skutu ræningjarnir að tveimur lögreglumönnum og hæfðu annan þeirra í lærið. Þetta rán leiddi til þess að danska lögreglan fékk innsýn í starfsemi hryðjuverkasamtakanna FIS. Ætlun ræningjanna var að útvega fimm milljónir dkr. til kaupa á vopnum fyrir baráttu FIS- hreyfingarinnar í Alsír. FIS stendur á bak við blóðuga baráttu fyrir stofnun íslamsks ríkis í Alsír. Ræningjarnir þrír voru: Thierry Civelly, 25 ára franskur ríkisborgari, Mohammed Bettayeb, 33 ára franskur ríkisborgari af alsírskum uppruna, og Ismael Debboub, 52 ára alsírskur ríkisborgari.
Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.
| Forlag | SAGA Egmont |
| Forfatter | – Ýmsir |
| Type | Lydbog |
| Format | zip_mp3 |
| Sprog | Islandsk |
| Oplæser | Kristján Franklín Magnús |
| Udgivelsesdato | 29-03-2022 |
| Udgiver | SAGA Egmont |
| Serie | Norræn Sakamál 2005 |
| Spilletid | 25 Minutter |
| Filtype | zip_mp3 |
| Filstørrelse | 18413 KB |
| Kopibeskyttelse | DigitalVandmaerkning |
| Datamining | Ikke tilladt |
| ISBN-13 / EAN-13 | 9788726522143 |