Jón Sigurðsson: Þjóðmálaafskipti til loka þjóðfundar (Ebog, epub, Islandsk) af Páll Eggert Ólason

Jón Sigurðsson: Þjóðmálaafskipti til loka þjóðfundar

(Ebog, epub, Islandsk)

Forlag: SAGA Egmont

PRIS
67,- kr
Levering: Straks (Leveres på e-mail)

Når du handler på WilliamDam.dk, betaler du den pris du ser.

  • Ingen gebyrer
  • Ingen abonnementer
  • Ingen bindingsperioder

Beskrivelse

Í öðru hefti ævisögu Jón Sigurðssonar er gerð grein fyrir afnámi Alþingis á Íslandi og stofnun landsyfirréttar. Að vana lét Jón hag og höfuðmál þjóðarinnar sig varða, en þá voru verslunarmál, fjárhagsmál og stjórnarhagir landsins efst á baugi. Fjallað er um þann merka áfanga er danakonungur skipaði að Alþingi yrði endurreist á ný en þingið kom fyrst saman árið 1845 þar sem Jón Sigurðsson var kjörinn þingmaður Ísfirðinga. Sex árum síðar var kallað til Þjóðfundar sem reyndist afdrifaríkur atburður í sjálfstæðisbaráttu Íslendinga og hin fleygu orð „vér mótmælum allir" hljómuðu af vörum íslensku fulltrúanna.

Jón Sigurðsson I-V er ævisaga þjóðarhetju og leiðtoga Íslands í sjálfstæðisbaráttunni á 19. öld. Ævisagan var upprunalega gefin út í fimm bindum af Hinu Íslenzka Þjóðvinafélagi í Reykjavík á árunum 1929-1933. Verkið er viðamikið og gefur innsýn í afdrifaríka ævi Jóns Sigurðssonar og sjálfstæðisbaráttuna við Dani. Höfundur bókanna er Páll Eggert Ólason.

Páll Eggert Ólason (1883-1949) var íslenskur doktor og prófessor í sagnfræði. Eftir stúdentsprófið lauk hann embættisprófi í lögfræði við Háskóla Íslands og hlaut síðar doktorsnafnbót fyrir rit sitt um Jón Arason. Páll sinnti fjölbreyttum störfum í gegnum tíðina en þar má helst nefna stöðu bankastjóra Búnaðarbankans, skrifstofustjóra fjármálaráðuneytisins og bæjarfulltrúa í Reykjavíkurborg. Þekktastur er Páll þó fyrir fræða- og ritstörf sín sem skipuðu stóran sess á starfsferli hans. Hann var afkastamikill rithöfundur enda fróður um sögu Íslands og afar leikinn við heimildavinnu. Ritverk hans eru bæði yfirgripsmikil og efnisrík en meðal þeirra eru samantekt á Íslenzkum æviskrám, Ævisaga Jóns Sigurðssonar I-V og Menn og menntir siðaskiptaaldarinnar á Íslandi I-IV.

Læsernes anmeldelser (0)

Alle detaljer

Forlag SAGA Egmont
Forfatter Páll Eggert Ólason
Type Ebog
Format epub
Sprog Islandsk
Udgivelsesdato 14-04-2023
Udgiver SAGA Egmont
Serie Jón Sigurðsson
Serienummer 2
Sideantal 496 Sider
Filtype epub
Filversion 3.0
Filformat Reflowable
Filstørrelse 638 KB
Kopibeskyttelse DigitalVandmaerkning
Datamining Ikke tilladt
ISBN-13 / EAN-13 9788728281857