Forventes på lager: 04-01-2023
Hinn ungi efnaði Neville Lynne flyst á sléttur Ástralíu og hefur námurekstur í Lorn Hope. Eitt kvöld í þorpinu er ung kona í leit að húsaskjóli. Margir bjóða henni húsaskjól en hafa misgóða hluti í hyggju. Brugðið er á það ráð að selja hana til hæstbjóðanda á uppboði til að fjármagna spítala. Neville aumkar sér yfir örlögum hennar og býður hæst allra, en það hefur í för með sér örlög sem hann gat ómögulega séð fyrir.
Bókin naut mikilla vinsælda á Íslandi áður fyrr sem hluti af Sögusafni heimilanna.
Persónurnar og notkun á tungumáli í verkinu endurspegla ekki skoðanir útgefandans. Verkið er gefið út sem sögulegt skjal sem inniheldur lýsingar á tíðaranda og skynjun manna sem tíðkaðist á tímum skrifanna.
Serían samanstendur af eldri sögum sem eiga það sameiginlegt að hafa verið eftirsóttar til lengri tíma í flokki rómantískra bókmennta. Bækurnar henta einstaklega vel þegar þú vilt gleyma þér í rómantík og ævintýrum gamla tímans.
Charles Garvice var breskur rithöfundur sem skrifaði ástarsögur. Ferill hans hófst á blaðamennsku en síðar naut hann gífurlegra vinsælda sem penni. Hann seldi á aðra milljón bóka árlega til dauðadags.
| Forlag | SAGA Egmont |
| Forfatter | Charles Garvice |
| Type | Ebog |
| Format | epub |
| Sprog | Islandsk |
| Udgivelsesdato | 04-01-2023 |
| Udgiver | SAGA Egmont |
| Serie | Klassísk rómantík |
| Serienummer | 6 |
| Oversætter | Jóhannes Vigfússon |
| Sideantal | 210 Sider |
| Filtype | epub |
| Filversion | 3.0 |
| Filformat | Reflowable |
| Filstørrelse | 513 KB |
| Kopibeskyttelse | DigitalVandmaerkning |
| Datamining | Ikke tilladt |
| ISBN-13 / EAN-13 | 9788728281475 |