Forventes på lager: 29-03-2022
Þegar ég kom til vinnu föstudagsmorguninn 28. febrúar 2003 var mér sagt að hraðbanki hefði verið sprengdur í Brunflo sem er um 1,5 kílómetra austan við Östersund. Mér var líka sagt að hlutur, sem kynni að vera sprengja, lægi fyrir utan lögreglustöðina í Östersund. Mér var sagt að fara strax til Brunflo til að aðstoða við rannsókn málsins en ætlunin var að banka upp á hjá íbúum þar til að spyrja þá út í sprenginguna. Þegar ég var að yfirgefa lögreglustöðina var tilkynnt um brunninn bíl í nágrenni Lit, um 1,5 kílómetra norðan við Östersund. Á leiðinni til Brunflo hvarflaði að mér að þessi þrjú mál tengdust öll en ekkert var þó komið fram á þeirri stundu sem benti til þess.
Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ástæðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.
| Forlag | SAGA Egmont |
| Forfatter | – Ýmsir |
| Type | Lydbog |
| Format | zip_mp3 |
| Sprog | Islandsk |
| Oplæser | Kristján Franklín Magnús |
| Udgivelsesdato | 29-03-2022 |
| Udgiver | SAGA Egmont |
| Serie | Norræn Sakamál 2005 |
| Spilletid | 28 Minutter |
| Filtype | zip_mp3 |
| Filstørrelse | 20602 KB |
| Kopibeskyttelse | DigitalVandmaerkning |
| Datamining | Ikke tilladt |
| ISBN-13 / EAN-13 | 9788726522181 |