Beskrivelse
Hvað gerist þegar fortíðin bankar upp á og við neyðumst til að horfa í eigin barm? Danielle Steel leiðir okkur hér í ferðalag í tíma og rúmi eins og henni er einni lagið.
Lífið leikur við Charles Waterston - eða svo heldur hann. En þegar konan hans fer frá honum og fyrirtækið sem hann vinnur hjá flytur frá London til New York neyðist hann til að enduruppgötva sjálfan sig. Á leiðinni í skíðaferð verður hann veðurtepptur í litlum smábæ og endar með að leigja gamalt hús. Þar uppgötvar hann dagbók konu sem bjó í húsinu 200 árum áður og fyrr en varir er hann farinn að sjá henni bregða fyrir á göngum hússins. Í ljós kemur að þau eiga ýmislegt sameiginlegt og gæti þessi upplifun orðið það sem bjargar honum, með því að leyfa honum að sleppa tökum á eigin fortíð og líta af bjartsýni fram á veginn.
Bók fyrir alla aðdáendur metsöluhöfundarins alkunna.
Danielle Steel er mest seldi rithöfundur á heimsvísu. Hún hefur skrifað yfir 200 bækur sem hafa selst í meira en billjón eintökum. Allar bækur Steel hafa ratað á metsölulista víða um heim, þar með talið New York Times, Wall Street Journal og Sunday Times.