Forventes på lager: 29-01-2022
Í ævintýrinu um Skógarhúsið segir frá þremur systrum sem villast af leið inni í skóginum. Þær fá gistingu og mat hjá gömlum manni sem býr í litlu skógarhúsi gegn því að sinna húsverkum og fóðra dýrin. Það fór þó ekki eins vel fyrir eldri systrunum tveimur og þeirri yngstu, því einungis sú yngsta fór í einu og öllu eftir fyrirmælum gamla mannsins og uppskar ríkulega.
Ævintýri Grimmsbræðra eru löngu orðin þekkt um allan heim enda verið þýdd á fleiri hundruð tungumál. Þjóðsögur Grimmsbræðra hafa tekið töluverðum breytingum í aldanna rás án þess þó að missa upprunalegan boðskap sinn og í dag ganga þjóðsögur Jacobs og Wilhelms einfaldlega undir nafninu Ævintýri Grimmsbræðra.
Bræðurnir Jacob og Wilhelm fæddust í Þýskalandi. Þeir voru málvísindamenn og sömdu þjóðsögur til að efla og styrkja þjóðsagnalist heimalandsins. Bræðurnir nutu töluverðrar hylli fyrir þjóðsögur sínar á 19. öld þótt margar þeirra hafi þótt verulega óhugnalegar. Meðal annarra þekktra ævintýra Grimmsbræðra eru Mjalllhvít, Rauðhetta og Öskubuska.
| Forlag | SAGA Egmont |
| Forfatter | Grimmsbræður |
| Type | Lydbog |
| Format | zip_mp3 |
| Sprog | Islandsk |
| Udgivelsesdato | 29-01-2022 |
| Udgiver | SAGA Egmont |
| Serie | Grimmsævintýri |
| Serienummer | 43 |
| Spilletid | 12 Minutter |
| Oversætter | Theódór Árnason |
| Filtype | zip_mp3 |
| Filstørrelse | 9547 KB |
| Kopibeskyttelse | DigitalVandmaerkning |
| Datamining | Ikke tilladt |
| ISBN-13 / EAN-13 | 9788728038581 |