Forventes på lager: 01-01-2022
Franz Lizst var talinn vera undrabarn í heimi tónlistar. Það er mikil gæfa að vera vel liðinn listamaður í eigin samtíma og þá gæfu lifði Franz við. Hann fæddist í Ungverjalandi árið 1811, faðir hans var tónlistarmaður og því hófst ferill hans snemma. Hann kom fyrst fram einungis 9 ára gamall. Franz fluttist til Parísar eftir dauða föður síns árið 1827, hann sá fyrir sér og móður sinni sem píanókennari, ár hans í París voru erfið en hann uppskar vel fyrir. Upp úr 1839 fór hann á tónleikaferðalög um Evrópu og vakti mikla aðdáun og hrifningu.
Theodór Árnason fæddist 10. desember 1889. Hann ólst upp á Seyðisfirði þar sem hann lærði á á fiðlu sem barn. Hann starfaði sem hljómsveitarstjóri í kvikmyndahúsi í Winnipeg og lærði hljómlist í Kaupmannahöfn. Hann er íslendingum þó þekktastur sem rithöfundur og þýðandi. Hann þýddi m.a. nokkur Grímsævintýri auk þess sem hann skrifaði um helstu tónsnillinga heimsins.
| Forlag | SAGA Egmont |
| Forfatter | Theódór Árnason |
| Type | Lydbog |
| Format | zip_mp3 |
| Sprog | Islandsk |
| Oplæser | Kristján Franklín Magnús |
| Udgivelsesdato | 01-01-2022 |
| Udgiver | SAGA Egmont |
| Serie | Tónsnillingaþættir |
| Serienummer | 27 |
| Spilletid | 7 Minutter |
| Filtype | zip_mp3 |
| Filstørrelse | 5122 KB |
| Kopibeskyttelse | DigitalVandmaerkning |
| Datamining | Ikke tilladt |
| ISBN-13 / EAN-13 | 9788728037850 |